2024 Dagur íslenska táknmálsins
Í tilefni af degi íslenska táknmálsins 2024 verður ýmislegt í boði sunnudaginn 11. febrúar
Viðburður á vegum Málnefndar um íslenskt táknmál og Borgabókasafnsins þar sem Eyrún Ólafsdóttir segir frá reynslu sinni, Fyrrverandi nemandi, núverandi nemi. Viðburðurinn verður haldinn í Grófinni kl 15:00
Samskiptamiðstöð verður með hátíðardagskrá í sal Listasafns Reykjavíkur við Tryggvagötu kl 17:00-19:00. Þar verður veitt viðurkenning dags íslensks táknmáls og viðurkenning fyrir varðveislu íslensks táknmáls.
Frumflutningur verður á menningarefni fyrir táknmálsbörn.
Verið öll velkomin.
Sama dag verða leiðsagnir á listasöfnum, Kl 12-14 verður boðið upp á döff leiðsögn um Listasafn Reykjavíkur, Tryggvagötu og kl 14-15 verður táknmálstúlkuð leiðsögn á Listasafni Íslands, Safnahúsinu við Hverfisgötu.