2024 Dagur íslenska táknmálsins
Í tilefni af degi íslenska táknmálsins 2024 verður ýmislegt í boði sunnudaginn 11. febrúar
Viðburður á vegum Málnefndar um íslenskt táknmál og Borgabókasafnsins þar sem Eyrún Ólafsdóttir segir frá reynslu sinni, Fyrrverandi nemandi, núverandi nemi. Viðburðurinn verður haldinn í Grófinni kl 15:00
Samskiptamiðstöð verður með hátíðardagskrá í sal Listasafns Reykjavíkur við Tryggvagötu kl 17:00-19:00. Þar verður veitt viðurkenning dags íslensks táknmáls og viðurkenning fyrir varðveislu íslensks táknmáls.
Frumflutningur verður á menningarefni fyrir táknmálsbörn.
Verið öll velkomin.
Sama dag verða fleiri viðburðir:
* Kl 13-14 verður boðið upp á döff leiðsögn um Listasafn Reykjavíkur, Tryggvagötu
* kl 14-15 verður táknmálstúlkuð leiðsögn á Listasafni Íslands, Safnahúsinu við Hverfisgötu
* Kl 14-15 verður táknmálstúlkuð messa í Fríkirkjunni í Reykjavík
Á laugardeginum 10. febrúar heldur bókasafnið í Hafnarfirði upp á dag íslensks táknmáls með því að sýna myndbönd með þýddum barnabókum af SignWiki og með fingrastafrófið uppi við.