2023 Dagur íslenska táknmálsins
Í tilefni af degi íslenska táknmálsins 2023 verður ýmislegt í boði.
Fimmtudaginn 9. febrúar verður viðburður á vegum Málnefndar um íslenskt táknmál og Borgabókasafnsins þar sem Jakob Grojs segir frá upplifun og reynslu sinni við að flytja til Íslands og læra ÍTM.
Auglýsing á Facebook fyrir viðburðinn.
Laugardaginn 11. febrúar mun Samskiptamiðstöð birta nokkur myndbönd á heimasíðu SHH og Facebook síðu SHH í tilefni dagsins - þau myndbönd eru hér fyrir neðan.
Félag heyrnarlausra með viðburði á laugardeginum sem sameina dag íslenska táknmálsins og afmæli Félags heyrnarlausra auk þess sem boðið verður upp á táknmálstúlkun á 112 deginum í Hörpu og hjá RUV verður þátturinn #12 stig táknmálstúlkaður á RUV 2 laugardagskvöldið 11. febrúar.
Seinna í febrúar verður þingmönnum boðið upp á eina kennslustund í íslensku táknmáli, markmiðið með þeirri kennslu er að vekja athygli þingmanna á mikilvægi íslensks táknmáls sem eina hefðbundna minnihlutamálsins á Íslandi og lögbundnum réttindum táknmálstalandi fólks.