Kvæðið um fuglana (Snert hörpu mína) - táknmálsútgáfa
Kvæðið um fuglana
Þýðing: Árný Guðmundsdóttir og Kolbrún Völkudóttir
Kvikmyndataka: Tómas Á. Evertsson
Snert hörpu mína, himinborna dís,
ENGILL spila-á-hörpu
svo hlusti englar guðs í Paradís.
Hljómar-upp HLUSTA PARADÍS
Við götu mína fann ég fjalarstúf
VEGUR FINNA SPÍTA
og festi á hann streng og rauðan skúf.
RAUÐUR BAND dingla-DÚSKUR
Úr furutré, sem fann ég út við sjó
SJÓR FINNA SPÍTA
ég fugla skar og líka' úr smiðjumó.
TÁLGA FUGL
Í huganum til himins oft ég svíf
HUGSA-upp
og hlýt að geta sungið í þá líf.
SYNGJA-byrja uppi og niður í fugl VÆNGIR-fljúga
Þeir geta sumir synt á læk og tjörn,
EINN-OG-EINN TJÖRN SYNDA FUGL
og sumir verða alltaf lítil börn.
SUMIR-hægra megin EINKENNI BÖRN ÁRFAM
En sólin gyllir sund og bláan fjörð
SÓL, FJÖRÐUR
og sameinar með töfrum loft og jörð.
TÖFRAR TENGJA
Ég heyri' í fjarska villtan vængjaþyt.
HEYRA VÆNGIR-fljúga
Um varpann leikur draumsins perluglit.
FJÖRÐUR GLITRAR
Snert hörpu mína himinborna dís,
ENGILL spila-á-hörpu
og hlustið, englar guðs í Paradís.
ÓMAR-upp HLUSTA PARADÍS